lørdag den 1. juni 2013

Froskarnir í London



Fyrstu dagana í London fengum við að búa í íbúð Nönnu frænku. Út um gluggann, í hálf niðurgröfnu eldhúsi, mátti sjá lítinn grænan bala. Í fyrstu virtist sem einn froskur hefði þar búsetu en eftir nokkra daga bættist annar við. Einn morguninn voru svo komnir töluvert fleiri froskar; allt að sjö talsins. Þetta var alvöru samkoma. Það var synt og buslað en einnig röðuðu froskarnir sér upp á ákveðinn hátt, líkt og þeir væru að tjá sig í anda hópfimleika.

Þetta voru áhugaverðir froskar. Þeir virtust hafna öllum staðalímyndum um “hamingjusama froskinn í fallegri tjörn” og völdu sér þess í stað dvöl við nokkuð hráar aðstæður í ferningslaga bala úr plasti. Balinn var samt ekki bara í einhverjum lit, þeir völdu auðvitað grænan bala. Yfir balanum gnæfði hæna yfir vötnum. Hún dró fram sterkar andstæður í rauðum lit og kúbísku formi að ofanverðu. Mjúkt formið að neðan myndaði þó samfellu með mýkri formum balans auk þess sem guli liturinn brúaði andstæða liti; rauðan og grænan.

Svo má halda áfram að spá og spekúlera, eins og hvort hænan hafi verið þeirra viti og vernd? Nú eða hvort þetta umhverfi hafi á annað borð haft merkingu fyrir þessu litlu dýr? Það breytir því ekki, að í þessu óvænta landnámi froskanna er fólgin ákveðin bjartsýni í mínum huga. Það er alltaf jafn skemmtilegt að sjá náttúruna stíga inn í manngert umhverfi. Við erum jú vön gagnstæðri þróun þar sem manneskjan stígur inn í náttúruna - því miður oft svo harkalega og miskunnarlaust.

Síðan er engu líkara en náttúran hafi sköpunarkraft. Það er, að hún taki sjálf upp á því óvænta og bregði sér í nýtt samhengi. Getur það hreinlega verið að kraftar ofar okkar skilningi hafi verið að verki þegar græna balanum og hænunni var komið fyrir? Við erum eflaust bara lítill hluti í samhengi náttúru og skapandi krafta. Hljómar trúarlega þó það sé ekki ætlunin. Það er nefnilega minn hugur sem leggur listræna merkingu í búsetu froskanna. Ástæða þess er þó sú, að froskarnir í balanum minna mig á gjörning í anda nútímalistar. Þá er spurningin: Hver stendur á bakvið gjörninginn?

Froskarnir varpa ljósi á stærðir og stærðarhlutföll. Hvað er að vera lítill? Hvað er að vera stór? Við erum stærri en froskarnir og notum bala sem nytjahlut en ekki híbýli. Híbýli manneskjunnar eru stærri og geta verið mjög stór. Í London er nýlega búið að byggja 300 metra háan turn sem heitir “The Shard”. Þó turninn fylli verulega út í borgarmyndina er hann tæplega fyrir allar stéttir samfélagsins. Ég er samt ekki á móti stórum byggingum. Þessi bygging ber einfaldlega öll merki þess að vera stór til þess eins að deila og drottna. Til þess að ríkt fólk geti horft yfir heiminn úr lúxusíbúðinni sinni, þennan heim sem það telur sig hafa sigrað.

En mannfólkið stækkar ekki í takt við byggingarnar og enn síður stækkar andi mannsins. Við verðum alltaf jafn ótrúlega lítil. Í stað þess að reyna að brjótast út úr stóru mengi lítilla vera, með auðmagnssöfnun á kostnað heildarinnar, ættum við frekar að dvelja í þessu ótrúlega fjölbreytilega mengi og gera það gott fyrir sem flesta. Leyfum okkur svo að vera lítil og njóta þess í botn, eins og froskar í grænum bala.