Hvar varstu þegar John Lennon dó? Hvað varstu að gera þegar ráðist var á Tvíburaturnanna? Spurningarnar snúa að ákveðnum endalokum en hvað um upphafið? Hvar varstu þegar internetið byrjaði?
Við upphaf internetsins bjó ég á prestsetrinu Hruna, þar sem er fallegur kirkjugarður og segja má að ákveðinn heilagleiki svífi yfir vötnum. Ég var þó ekki á neinu æðra tilverustigi þegar ég heyrði um internetið, heldur inni í sjónvarpsherbergi. Í túbusjónvarpinu var frétt um mann sem bjó á Kópaskeri. Hann gat með einhverju móti sett sig í samband við fólk, hvar sem er í þessum heimi, í gegnum tölvuna sína.
Á þessum tíma fannst mér ekki mikið til fréttarinnar koma þar sem maðurinn skoðaði heiminn inní lítilli kompu. Það var dregið fyrir glugga og lýsingin var nokkuð stofnanaleg. Eftir á að hyggja felst þó galdur internetsins einmitt í því að skoða fjarlæg lönd, eins nákvæmlega og kostur er, inní nógu lítilli og myrkri kompu. Því það sem við sjáum fyrir framan skjáinn færir hugann eitthvert allt annað en þar sem við erum þá stundina.
Hugurinn tekur svo stökk tíu ár fram í tímann, eftir fréttina um fyrsta “internetverjann” á Kópaskeri, þegar heimasíður fóru að verða algengar. Þetta var undir lok menntaskólaáranna en þar var eitt loforð í kosningum til hinna ýmsu embætta í félagslífinu að koma á fót heimasíðu Skólafélags MR. Ákveðin tilvistarspurning skaut þá upp kollinum: Skyldi ég einhvern tímann búa mér til heimasíðu? Netið var í huga mínum enn í miklum ljóma, svo miklum að til þess að stíga fæti inn í það þyrfti ég helst að vera búinn að leysa einhverja stóra alheimsgátu.
Með arkitektanámi mínu þróaðist hugurinn. Ég fann mig ekki lengur tilknúinn til að leysa alheims-spurningarnar. Engu að síður voru spurningar þessa tíma afar stórar og í kjölfarið var fyrsta skrefið tekið inn í heim netsins. Það var bloggið mitt gamla: bjarkitekt.blogspot.com. Það var, grínlaust, lesið út um allan heim þó það hafi kannski ekki allir í heiminum lesið það. Þó var möguleikinn fyrir hendi sem er magnað í sjálfu sér. Þetta blog átti sinn góða tíma og hætti svo, hægt og rólega.
Í dag er svo loksins komin í loftið heimasíða. Komið er svar við einni tilvistarspurningu minni. Þó ekki sé komið svar við neinni alheimsgátu þá eru kannski komnar fram vangaveltur sem varpa ljósi á stóru myndina. Hver veit svo nema svarið við gátunni muni birtast hér á bloggi síðunnar eða hvort það sé dulkóðað nú þegar í verkefnum (portfolio) eða ferilskránni (cv)? En það er umfram allt afar ánægjulegt að sína valin verkefni á internetinu og er það von mín að gestir síðunnar hafi gagn og gaman af.
Draumurinn um heimasíðu hefur ræst og vil ég nota tækifærið og þakka öllum sem hafa hjálpað mér við gerð heimasíðunnar. Aðallega þó Laufeyju Agnarsdóttur og Nönnu systur fyrir að lesa yfir texta og Jóhannesi Frey Þorleifssyni (sem einnig á mikið hrós skilið fyrir xland.is) fyrir mörg góð ráð.
Njótið vel!
Bjarki.
Ingen kommentarer:
Send en kommentar